Folge uns
iBookstore
Android app on Google Play
Gefällt mir
Ein Programm der Universität Leiden
Þegar rauða reikistjarnan var blá
17. January 2013

Þú veist eflaust að jörðin er ekki eina reikistjarnan í sólkerfinu okkar; þær eru átta talsins. Sú sem líkist jörðinni okkar mest er Mars en hann er stundum kallaður rauða reikistjarnan vegna rauða litsins á yfirborðinu. Við komumst alltaf sífellt betur að því að í langan tíma var Mars í raun blá reikistjarna, þakin stöðuvötnum, ám og höfum eins og jörðin!

Þessar glæsilegu myndir tók Mars Express geimfarið sem er á braut um Mars. Á þeim sést árfarvegur sem liggur eftir yfirborði reikistjörnunnar. Talið er að farvegurinn hafi orðið til af völdum mikils fljóts í fjarlægri fortíð Mars, milljörðum ár áður en við mennirnir urðum til!

Það er enn vatn á Mars í dag þótt það sé frosið undir yfirborðinu og á norður- og suðurpólnum (eins og íshetturnar á jörðinni). Því gæti maður haldið að þetta væri ekkert sérstaklega merkileg uppgötvun en farvegurinn er hins vegar risavaxinn! Hann er 1.500 km langur og teygir sig lengra en Rínarfljót sem liggur í gegnum Evrópu, alla leið frá Sviss til Hollands! Þar að auki er farvegurinn 300 metra djúpur. Það er dýpra en nokkurt fljót á jörðinni!

Þesar nýju myndir Mars Express veita okkur spennandi sýn á fortíð rauðu reikistjörnunnar. Og svo virðist sem hún hafi ekki verið mjög ólík okkar eigin hnetti í dag!

Fróðleg staðreynd

Vísindamenn telja að fyrir milljörðum ára hafi orðið á Mars mestu flóð í sögu sólkerfisins! Það er erfitt að ímynda sér það í dag því Mars er hrollkaldur hnöttur með örþunnan lofthjúp svo vatn getur ekki runnið í langan tíma á yfirborðinu.

Mehr Informationen

 Þessi Space Scoop frétt er byggð á fréttatilkynningu ESA.

Share:

Mehr Neuigkeiten
14 September 2020
10 September 2020
3 September 2020

Bilder

Als der Rote Planet noch blau war
Als der Rote Planet noch blau war

Printer-friendly

PDF File
1,1 MB